Loading

Yfirlýsing Isavia vegna Wow air

Direct News Source

Í nótt bárust Isavia fregnir af því að flugvélar WOW air færu ekki frá Bandaríkjunum aftur til Íslands. Í kjölfarið beitti Isavia stöðvunarheimild á grundvelli loftferðalaga á flugvél WOW air, sem staðsett var á Keflavíkurflugvelli, til tryggingar á ógreiddum notendagjöldum.

Isavia harmar það að WOW air hafi hætt rekstri enda hefur félagið flutt fjölmarga farþega um Keflavíkurflugvöll síðastliðin sjö ár og verið mikilvægur hlekkur í velgengni Keflavíkurflugvallar og uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi.

Það er ljóst að brotthvarf WOW air mun hafa áhrif á rekstur Keflavíkurflugvallar. Isavia mun á næstunni fara yfir hver þau áhrif kunni að verða.

Starfsfólk Isavia á Keflavíkurflugvelli mun aðstoða farþega WOW air eftir bestu getu í dag og næstu daga.

This press release was sourced from Isavia on 28-Mar-2019.