Loading

PLAY stækkar markaðssvæði sitt í Norður-Ameríku og tekur á loft til Kanada

Direct News Source

PLAY stækkar markaðssvæði sitt í Norður-Ameríku og tekur á loft til Kanada

Flugfélagið PLAY hefur hafið miðasölu á flugsætum til Toronto í Kanada en áætlunarflug þangað hefst þann 22. júní. Flogið verður alla daga vikunnar á Hamilton International flugvöll. Boðið veður upp á frábærar tengingar við 15 áfangastaði PLAY í Evrópu.

Toronto er fimmti áfangastaður PLAY í Norður-Ameríku. Þessi viðbót við leiðakerfið er rökrétt skref fyrir PLAY þar sem áfangastaðir félagsins í Norður-Ameríku hafa gengið vonum framar.

Toronto er stærsta borg Kanada og mun þessi nýi áfangastaður stækka markaðssvæði PLAY í Norður-Ameríku.

Þægilegur flugvöllur og lægstu fargjöldin á milli Toronto og Evrópu
Á svæðinu í kringum Toronto og Hamilton, búa um átta milljónir sem gerir svæðið eitt af þéttbýlustu svæðum í Norður-Ameríku . Á svæðinu ræður fjölmenning ríkjum og í Toronto eru töluð meira en 140 tungumál. Eitt af helstu einkennum Toronto er framúrskarandi matarmenning borgarinnar. Fjölþjóðamenningin lætur ekki sitt eftir liggja og þar má finna góðgæti frá öllum heimshornum. Þá er frábært að versla í Toronto en þar má finna mikið úrval verslana, allt frá dýrustu tískuhúsunum til sjarmerandi lítilla hönnunarverslana.

Hamilton International flugvöllur er frekar lítill og þægilegur og farþegar eru ekki lengi að fara í gegn um hann. Þá eru samgöngur frá flugvellinum til Toronto greiðar. Flugvöllurinn er ódýr sem mun gera það að verkum að PLAY getur boðið upp á lægstu fargjöldin á milli Toronto og Evrópu. Allt eru þetta atriði sem falla vel að stefnu PLAY sem gengur út á að bjóða upp á lág fargjöld, einfalda og þægilega þjónustu.

Hátt í fjörutíu áfangastaðir í ár
Áfangastaðir PLAY árið 2022 voru 25 talsins en verða hátt í 40 árið 2023, bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. Félagið mun nota 10 flugvélar í starfseminni árið 2023 og veita rúmlega 500 manns atvinnu á árinu.

"Ég hef beðið spenntur eftir því að við hefjum miðasölu á flugi til Kanada enda mikilvægur markaður fyrir okkur. Miðað við hvað hefur gengið vel á mörkuðum okkar í Norður-Ameríku er ég fullur tilhlökkunar fyrir þessum nýja áfangastað. Við förum inn á þennan markað með því hugarfari að efla ferðalög á milli landanna. Það er frábært að geta boðið enn fleirum upp á þann valkost að fljúga ódýrt yfir hafið. Þessi viðbót stækkar markaðssvæði PLAY talsvert en á svæðinu búa hátt í átta milljónir manns sem geta nú valið ódýran og góðan kost fyrir ferðalagið til fjölda áfangastaða í Evrópu eða Íslands," segir Birgir Jónsson.

This press release was sourced from PLAY on 10-Jan-2023.